Um KMÍ
Á döfinni

28.2.2025

Opið fyrir umsóknir í vinnusmiðju SKL fyrir heimildamyndir

Samtök kvikmyndaleikstjóra (SKL) standa fyrir vinnusmiðju fyrir heimildamyndir í samstarfi við alþjóðlegu heimildamyndahátíðina IceDocs.

Vinnusmiðjan er fyrir heimildaverk í vinnslu, hvort sem myndirnar eru í þróun, á framleiðslustigi eða í grófklippi. Vinnusmiðjan er haldin á Akranesi 24. – 27. júlí í samvinnu við alþjóðlegu heimildahátíðina IceDocs.

Vinnusmiðjan er styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands.

Leiðbeinandi með mikla alþjóðlega reynslu og þekkingu

Ráðgjafi er Martin Horyna sem hefur í meira en áratug starfað við að velja kvikmyndir á Karlovy Vary International Film Festival og býr yfir mikilli þekkingu á hinum alþjóðlega markaði fyrir heimildamyndir. Martin hefur setið í fjölda dómnefnda, ásamt því að starfa sem heimildamyndaráðgjafi, bæði varðandi áætlanagerð vegna kvikmyndahátíða en einnig sem dramatúrg.

Martin verður með fyrirlestur í samstarfi við IceDocs á meðan á hátíðinni stendur um áætlanagerð fyrir þátttöku á kvikmyndahátíðum.

Fyrirlesturinn er opinn öllum og er hluti af þeirri viðamikilli bransadagskrá IceDocs.

Markmið smiðjunnar

Í smiðjunni verður lögð áhersla á að styrkja kjarna efnistaka verkefna og frásagnarmáta þeirra og fá ráðgjöf hvernig hið sjónræna efni og treatment spila saman. Markmið smiðjunnar er að styðja við framleiðslu og þróun á skapandi heimildamyndum. Það sem verður metið við val á verkefnum eru gæði umsóknarinnar, skýr listræn sýn með áherslu á raunveruleikann og kvikmyndamiðilinn sem og áhersla á að fjalla um samtímann á sem áhrifamestan og skapandi hátt. Verkefni sem hafa hlotið þróunar- og framleiðslustyrki frá Kvikmyndamiðstöð Íslands fá forgang en alls verða fimm verkefni valin til að taka þátt í smiðjunni.

Umsóknir

Verkefnastjóri er Yrsa Roca Fannberg og ber að senda allar fyrirspurnir og umsóknir á netfangið yrsarocafannberg@gmail.com með titlinum Vinnusmiðja Martin Horyna 2025.

Smiðjan fer fram á ensku og skulu umsóknir vera á ensku.

Umsókn skal berast sem eitt pdf-skjal og þarf að innihalda stutt synopsis, greinargerð leikstjóra, treatment/handrit (max 7 bls.) og sjónrænt efni (ljósmyndir, eða samanklippt efni allt að 10 mínútum). Verkefni sem eru á grófklippsstigi þurfa að senda valið klippt efni (allt að 20 mínútur að lengd). Einnig verður beðið um stutta greinargerð leikstjóra og/eða framleiðanda um hvaða væntingar þau hafa til smiðjunnar. Verkefni sem hafa áður tekið þátt í smiðju SKL með Mörtu Andreu sem ráðgjafa þurfa sýna fram á þróun verkefnanna.

Umsóknin þarf að vera á ensku og þarf allt sjónrænt efni að vera með enskum texta.

Umsóknarfrestur er 19. maí og svar verður gefið 2. júní.

Þátttökugjald er 30.000 KSK. Í þáttökugjaldinu er innifalin gisting og morgun- og hádegismatur á Akranesi. Þátttakendur þurfa að greiða ferðakostnað og kvöldverð.

Vinnustofan er studd af Kvikmyndamiðstöð Íslands og er í samstarfi við alþjóðlegu heimildahátíðina IceDocs. Ætlast er til að verkefnin sem eru valin taki virkan þátt í smiðjunni og þeim viðburðum sem IceDocs býður upp á.