Um KMÍ
Á döfinni

22.4.2024

Íslensk draugasaga heimsfrumsýnd á Tribeca

Fyrsta kvikmynd Þórðar Pálssonar, The Damned, verður heimsfrumsýnd á Tribeca-kvikmyndahátíðinni í New York. Hollywood Reporter segir myndina vera falinn gimstein en hún skartar leikurunum Odessa Young og Joe Cole í aðalhlutverkum. Hátíðin fer fram 5.-16. júní.

The Damned er sálfræðileg hryllingsmynd sem gerist á 19. öld á Vestfjörðum og segir frá Evu, ekkju og erfingja afskekktar verbúðar. Þegar erlent seglskip strandar í firðinum stendur Eva frammi fyrir erfiðu vali: eiga hún og vinnumenn hennar að koma til bjargar eða forgangsraða frekar eigin velferð. Þjökuð af samviskubiti og vaxandi ótta um ómanneskjulega hefnd, takast Eva og vinnumenn hennar á við afleiðingar gjörða sinna.

Veturnir á Íslandi voru erfðir og fátækt mikil, en er hægt að réttlæta athafnir í nafni eigin velferðar? Þórður segir hugmyndina að sögunni megi rekja til draugasagna sem hann heyrði á uppvaxtarárum, um það hvernig heimamenn reyndu viljandi að láta skip reka á land. Síðan var allt hirt sem hægt var og passað upp á, að enginn lifði af til að segja frá.

„Draugur getur verið andi en einnig hræðilega vera, rotnandi líkami sem leitar þig uppi í myrkrinu. Svona sögur sátu í mér sem krakki og varð uppsprettan að The Damned,“ segir Þórður.

Þórður Pálsson, leikstjóri.

Myndin var tekin upp á Vestfjörðum í vetur. Ósvör í Bolungarvík var endurlífgað og lítið kvikmyndaver sett upp á Ísafirði. Meðframleiðandi myndarinnar, Guðmundur Arnar Guðmundsson, segir endurgreiðslukerfi menningar- og viðskiptaráðuneytisins hafa skipt sköpun og stuðningur Vestfirðinga og þá sérstaklega bæjarstjórar Bolungarvíkur og Ísafjarðarbæjar hafa verið ómetanlegan. Íslendingar eru í flestum lykilstörfum The Damned.

The Damned er framleidd af Elation og Wild Atlantic og meðframleidd af íslenska framleiðslufyrirtækinu Join Motion Pictures. Protagonist sér um alþjóðlega dreifingu myndarinnar og geta Íslendingar átt von á að hún verði sýnd í kvikmyndahúsum landsins með haustinu.