Áskorun evrópskra kvikmyndagerðarmanna um innleiðingu nýrra reglna um kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu og dreifingu
Evrópska framleiðendafélagið (European Producers Club) birti áskorun þann 15. október síðastliðinn um að kallað verði eftir því að framkvæmdastjórn og aðildarríki Evrópusambandsins/EEA innleiði nýjar reglur um alþjóðlegar streymiveitur til samræmis við þær sem gilda um evrópska ljósvakamiðla.
Í því felst að aðildarríkin fari fram á að lágmark 25% af veltu streymiveitna fari til miðlunar á evrópsku efni og að 80% af því verði framleitt af sjálfstæðum, evrópskum framleiðslufyrirtækjum. Einnig verði gerð krafa um framleiðslu á tungumáli hvers lands fyrir sig og nauðsyn þess að rétthafar efnis fái sanngjarnar greiðslur fyrir verk sín sem sýnd eru á slíkum veitum.
Í Frakklandi eiga sér stað viðræður stjórnvalda og hagsmunaaðila um gerð viðmiðunarreglna um starfsemi streymisveitna í evrópsku menningarlandslagi. Evrópska framleiðendafélagið hefur efnt til undirskriftalista sem hvetur Evrópulönd til að taka franska regluverkið sem fyrirmynd í innleiðingu tilskipunarinnar í hverju landi fyrir sig.
Í áskorun félagsins sem hefur verið undirrituð af leiðandi leikstjórum og öðru kvikmyndagerðarfólki í álfunni, þar á meðal nokkrum Íslendingum, er lögð áhersla á að hlúð verði áfram að greininni. Heimsfaraldurinn hafi sýnt fram á þörfina til að svara eftirspurn eftir fjölbreyttu gæðaefni. Öflug og sanngjörn umgjörð styrki samkeppnisstöðu evrópskrar kvikmyndagerðar og þar með miðlun á sagnaarfi þjóða Evrópu.
Gert er ráð fyrir að frumvarp um innleiðingu AVMS (Audiovisual Media Services Directive) verði lagt fram á Alþingi vorið 2021.
Hér má finna undirskriftalistann og nánari upplýsingar.