Um KMÍ
Á döfinni
  • Art-department-logo

26.5.2016

Art Department Masterclass óskar eftir umsóknum fyrir námskeiðið Digital Postproduction

Art Department Masterclass óskar eftir umsóknum fyrir námskeiðið „Digital Postproduction: A Playground for Building and Rebuilding the Worlds.“ Námskeiðið mun fara fram í Vilníus í Litháen, frá 13. – 18. júní. Allt að 20 þátttakendur frá Eystrasaltsríkjunum og Norðurlöndunum. Umsóknarfrestur rennur út 27. maí.

Á meðal fyrirlesara verða leikmyndahönnuðurnir Terry Ackland Snow (BatmanSuperman IISuperman III) og Jon Bunker (Last PassengerVertical Limit).

Allar nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublaði er að finna á heimasíðu Art Department Masterclass.